Aðalfundur Félags um Fjöruverðlaunin – bókmenntaverðlaun kvenna á Íslandi er haldinn 29. september kl. 17:30. Fundurinn er haldinn að Hallveigarstöðum, Túngötu 14, 101 Reykjavík.
Fjórar af fimm stjórnarkonum félagsins láta af störfum í ár, svo við auglýsum sérstaklega eftir framboðum til stjórnar. Stjórnarseta er 2 ár og er að sjálfsögðu stórskemmtileg!
Hafið samband við stjórn fyrir fimmtudaginn 22. september til að bjóða ykkur fram! Netfang: bokmenntaverdlaunkvenna@gmail.com.
Dagskrá fundar eru hefðbundin aðalfundarstörf:
- Kosning fundarstjóra og fundarritara
- Skýrsla stjórnar lögð fram
- Reikningar lagðir fram til samþykktar
- Lagabreytingar. Skriflegar tillögur félagsmanna um lagabreytingar skulu hafa borist stjórn eigi síðar en einni viku fyrir aðalfund (þ.e. 22. september) og skulu þær fylgja endanlegri dagskrá. Þær þurfa samþykki meirihluta fundarmanna.
- Ákvörðun félagsgjalds næsta árs.
- Kosning stjórnar. Framboð til stjórnarstarfa skulu hafa borist stjórn eigi síðar en einni viku fyrir aðalfund og skulu þau fylgja endanlegri dagskrá.
- Kosning skoðunarmanna reikninga
- Önnur mál