Vilt þú sitja í dómnefnd Fjöruverðlaunanna?


Nú er tekið við umsóknum um setu í dómnefndum Fjöruverðlaunanna – bókmenntaverðlauna kvenna og kvára á Íslandi.

Veitt eru verðlaun í þremur flokkum: flokki fagurbókmennta, flokki fræðibóka og rita almenns eðlis og flokki barna- og unglingabókmennta. Vakin er athygli á því að frá og með árinu 2027 verða tvenn verðlaun veitt í flokki fagurbókmennta, eða eitt skáldverk og ein ljóðabók.

 

Senda inn umsókn

 

Dómnefndarmeðlimir þurfa að hafa rúman tíma til að lesa allar bækur sem þeim berast en fjöldi þeirra er almennt á bilinu 20–60. Bækurnar fá dómnefndarmeðlimir jafnframt til eignar.

Reynt er að tryggja að bakgrunnur dómnefndarmeðlima sé fjölbreyttur og verða umsóknir metnar samkvæmt því. Athugið þó að í samræmi við reglur og tilgang verðlaunanna geta einungis konur og kvár sótt um stöðu í dómnefnd.

 

Nánari upplýsingar um starfs- og siðareglur dómnefnda.

 

Umsóknarfrestur er til og með 24. september.