Aðalfundur Fjöruverðlaunanna 2020

Aðalfundur félags um Fjöruverðlaunin – bókmenntaverðlaun kvenna á Íslandi er haldinn mánudaginn 5. október kl. 17:00. Fundurinn er haldinn á rafrænum vettvangi, í gegnum Zoom fjarfundarbúnaðinn.

Á fundinum verða lagðar fram breytingartillögur stjórnar á 3. grein laga félags um Fjöruverðlaunin sem leggur til útvíkkun á verðlaununum (sjá fyrir neðan).

Til þess að taka þátt í rafrænum aðalfundi er nauðsynlegt að skrá netfang sitt. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku, hér. 

Á næstu dögum mun félagsfólki berast krafa í heimabanka fyrir félagsgjöldum Fjöruverðlaunanna, 2.000 kr. Við hvetjum félagsfólk allt til að greiða árgjöldin og leggja þar með sitt af mörkum til að tryggja framgang Fjöruverðlaunanna, bókmenntaverðlaun kvenna á Íslandi!

Dagskrá fundar

  1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
  2. Skýrsla stjórnar lögð fram
  3. Reikningar lagðir fram til samþykktar
  4. Lagabreytingar (sjá tillögu stjórnar fyrir neðan). Skriflegar tillögur félagsmanna um lagabreytingar skulu hafa borist stjórn eigi síðar en einni viku fyrir aðalfund (þ.e. 28. september) og skulu þær fylgja endanlegri dagskrá. Þær þurfa samþykki meirihluta fundarmanna.
  5. Ákvörðun félagsgjalds næsta árs.
  6. Kosning skoðunarmanna reikninga
  7. Önnur mál

Lagabreytingatillaga stjórnar

  1. grein
    Tilgangur félagsins er að halda utan um skipulagningu og framkvæmd Fjöruverðlaunanna, bókmenntaverðlauna kvenna á Íslandi, sem veitt skulu fyrir marslok á hverju ári.

VERÐI:

  1. grein
    Tilgangur félagsins er að halda utan um skipulagningu og framkvæmd Fjöruverðlaunanna, bókmenntaverðlauna kvenna (sís og trans) og trans, kynsegin og intersex fólks á Íslandi, sem veitt skulu fyrir marslok á hverju ári.

Lesið greinargerð stjórnar um tillöguna, hér.