Fjöruverðlaunin óska eftir tilnefningum í ár

Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna, auglýsa eftir tilnefningum í ár.

Þátttökukostnaður er ókeypis, en þremur eintökum þarf að skila inn fyrir dómnefnd.

Hægt er að tilnefna bækur í þremur flokkum:

  • fagurbókmenntir
  • fræðirit & bækur almenns eðlis
  • barna- og unglingabókmenntir

Dómnefndarbókum skal komið á skrifstofu Félags íslenskra bókaútgefenda í allra síðasta lagi föstudaginn 1. nóvember 2019. Ef ekki er unnt að koma prentuðum bókum til skila fyrir þann tíma, er nauðsynlegt að senda rafrænt eintak á  bokmenntaverdlaunkvenna@gmail.com fyrir þann dag, svo að bókin komi til greina. Þá þurfa útgefendur að koma þremur prentuðum eintökum af sömu bók á skrifstofu FÍBÚT fyrir föstudaginn 22. nóvember 2019.

Aðeins bækur/handrit sem hafa borist fyrir 1. nóvember koma til greina, sem og aðeins handrit sem berast í prentuðum útgefnum eintökum fyrir 22. nóvember.

Þrjár bækur eru tilnefndar í hverjum flokki og verða tilnefningar kynntar 3. desember 2019. Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna á Íslandi, verða svo veitt í janúar 2020.

Hvaða bækur koma til greina?

Miðað er við að til að bækur teljist hæfar til að vera í Fjöruverðlaunapottinum séu þær:

  • skrifaðar af konu/konum
  • frumútgáfa sé á íslensku
  • gefnar út af forlagi á Íslandi
  • koma út í fyrsta sinn á því ári sem um ræðir (ekki endurútgáfur)
  • innihaldi texta af einhverju tagi
  • að kona/konur eigi a.m.k. 50% af textanum í bókinni, eða að kona/konur séu helmingur höfunda (ef margir)

Ef upp koma vafaatriði er það hverrar dómnefndar fyrir sig að vega og meta hvort umrædd bók skuli talin gjaldgeng eða ekki.