Fjöruverðlaunin 2014

Fjöruverðlaunin 2014 voru afhent í Iðnó sunnudaginn 23. febrúar kl. 11.

Dagskráin var að þessu sinni helguð skáldkonunni Jakobínu Sigurðardóttur (1918–1994) og verkum hennar.

Verðlaunin hlutu:

Flokkur fagurbókmennta:
Þórunn Erlu- og Valdimarsdóttir fyrir Stúlka með maga – skáldættarsaga. Útgefandi: JPV

Flokkur fræðibóka og rita almenns eðlis:
Guðný Hallgrímsdóttir fyrir Söguna af Guðrúnu Ketilsdóttur. Útgefandi: Háskólaútgáfan

Flokkur barna- og unglingabóka:
Lani Yamamoto fyrir bókina Stínu stórusæng. Útgefandi: Crymogea.

Tilnefndar voru:

Fagurbókmenntir:
Heiðrún Ólafsdóttir: Af hjaranum. Útg. Ungmennafélagið Heiðrún
Vigdís Grímsdóttir: Dísusaga – Konan með gulu töskuna. Útg. JPV
Þórunn Erlu- og Valdimarsdóttir: Stúlka með maga – skáldættarsaga. Útg. JPV

Fræðibækur og rit almenns eðlis:
Guðný Hallgrímsdóttir: Sagan af Guðrúnu Ketilsdóttur. Einsögurannsókn á ævi 18. aldar vinnukonu. Útg. Háskólaútgáfan
Gréta Sörensen: Prjónabiblían. Útg.  Vaka Helgafell
Jarþrúður Þórhallsdóttir: Önnur skynjun – ólík veröld. Lífsreynsla fólks á einhverfurófi. Útg. Háskólaútgáfan

Barna- og unglingabækur
Sif Sigmarsdóttir: Freyju saga – Múrinn. Útg. Mál og menning
Sigrún Eldjárn: Strokubörnin á Skuggaskeri. Útg. Mál og menning
Lani Yamamoto: Stína stórasæng. Útg. Crymogea

Dómnefndir Fjöruverðlaunanna 2014 skipuðu:

Fagurbókmenntir:
Sigríður Stefánsdóttir þjóðfélagsfræðingur og verkefnastjóri hjá Akureyrarbæ
Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir bókmenntafræðingur og rithöfundur
Guðrún Birna Eiríksdóttir bókmenntafræðingur og kennari

Fræðibækur og rit almenns eðlis:
Kristín Loftsdóttir prófessor í mannfræði við Háskóla Íslands
Þóra Ellen Þórhallsdóttir prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands
Birna Lárusdóttir fornleifafræðingur hjá Fornleifastofnun Íslands

Barna- og unglingabækur:
Líf Magneudóttir B.ed. og meistaranemi í íslensku
Helga Birgisdóttir doktorsnemi í barnabókmenntum
Ragnheiður Gestsdóttir rithöfundur og myndlistarmaður