Þessi lög voru felld úr gildi á aðalfundi Fjöruverðlaunanna – bókmenntaverðlauna kvenna á Íslandi þann 19. október 2023. Lesið núgildandi lög félagsins hér.
Lög Fjöruverðlaunanna – bókmenntaverðlauna kvenna á Íslandi 2020–2023
1. grein
Félagið heitir Fjöruverðlaunin – bókmenntaverðlaun kvenna á Íslandi.
2. grein
Heimili félagsins og varnarþing er í húsakynnum Rithöfundasambands Íslands, að Dyngjuvegi 8, 104 Reykjavík.
3. grein
Tilgangur félagsins er að halda utan um skipulagningu og framkvæmd Fjöruverðlaunanna, bókmenntaverðlauna kvenna (sís og trans) og trans, kynsegin og intersex fólks á Íslandi, sem veitt skulu fyrir marslok á hverju ári.
4. grein
Rétt á inngöngu í félagið hafa öll sem vilja stuðla að viðgangi verðlaunanna. Umsókn um inngöngu í félagið skal senda stjórn Fjöruverðlaunanna – bókmenntaverðlauna kvenna á Íslandi.
5. grein
Starfstímabil félagsins er 1. apríl til 31. mars. Á aðalfundi skal stjórn gera upp árangur liðins árs. Allir félagsmenn hafa atkvæðisrétt á aðalfundi.
6. grein
Aðalfund skal halda eigi síðar en 30. september ár hvert og skal boða til hans með sannanlegum hætti með minnst tveggja vikna fyrirvara, skv. netfangaskrá félagsins og á heimasíðu félagsins. Aðalfundur er löglegur, sé rétt til hans boðað. Einfaldur meirihluti mættra félagsmanna ræður úrslitum mála. Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:
- Kosning fundarstjóra og fundarritara
- Skýrsla stjórnar lögð fram
- Reikningar lagðir fram til samþykktar
- Lagabreytingar. Skriflegar tillögur félagsmanna um lagabreytingar skulu hafa borist stjórn eigi síðar en einni viku fyrir aðalfund og skulu þær fylgja endanlegri dagskrá. Þær þurfa samþykki meirihluta fundarmanna.
- Ákvörðun félagsgjalds næsta árs
- Kosning stjórnar. Framboð til stjórnarstarfa skulu hafa borist stjórn eigi síðar en einni viku fyrir aðalfund og skulu þau fylgja endanlegri dagskrá.
- Kosning skoðunarmanna reikninga
- Önnur mál
7. grein
Stjórn félagsins skal skipuð 4 félagsmönnum, formanni, 2 meðstjórnendum í aðalstjórn og 1 meðstjórnanda í varastjórn, kjörnum á aðalfundi til tveggja ára í senn. Stjórnin skiptir með sér verkum. Stjórn starfar samkvæmt starfsreglum sem hún setur sjálfri sér. Stjórn fer með málefni félagsins milli aðalfunda. Formaður boðar til funda. Firmaritun er í höndum meirihluta stjórnar.
8. grein
Rekstrarafgangi/hagnaði af starfsemi félagsins skal varið til áframhaldandi starfsemi félagsins.
9. grein
Ákvörðun um slit félagsins skal taka á aðalfundi með einföldum meirihluta atkvæða og renna eignir þess til Rithöfundasambands Íslands.
10. grein
Verðmæt skjöl og sögulegar heimildir um félagið varðveitist í Kvennasögusafni Íslands.
Lög þessi voru samþykkt á aðalfundi Fjöruverðlaunanna – bókmenntaverðlauna kvenna á Íslandi þann 5. október 2020.
Þessi lög voru felld úr gildi á aðalfundi Fjöruverðlaunanna – bókmenntaverðlauna kvenna á Íslandi þann 19. október 2023. Lesið núgildandi lög félagsins hér.