Eldri lög Fjöruverðlaunanna – 2015

Þessi lög voru felld úr gildi á aðalfundi Fjöruverðlaunanna – bókmenntaverðlauna kvenna á Íslandi þann 29. september 2016. Lesið núgildandi lög félagsins hér.

Lög Fjöruverðlaunanna – bókmenntaverðlauna kvenna á Íslandi 2015–2016

1. gr.

Félagið heitir Fjöruverðlaunin – bókmenntaverðlaun kvenna á Íslandi.

2. gr.

Heimili félagsins og varnarþing er í húsakynnum Rithöfundasambands Íslands, að Dyngjuvegi 8, 104 Reykjavík.

3. gr.

Tilgangur félagsins er að halda utan um skipulagningu og framkvæmd Fjöruverðlaunanna, bókmenntaverðlauna kvenna á Íslandi, sem veitt skulu fyrir marslok á hverju ári.

4. gr.

Rétt á inngöngu í félagið hafa öll sem vilja stuðla að viðgangi verðlaunanna. Umsókn um inngöngu í félagið skal senda stjórn Fjöruverðlaunanna – bókmenntaverðlauna kvenna á Íslandi.

5. gr.

Starfstímabil félagsins er 1. apríl til 31. mars. Á aðalfundi skal stjórn gera upp árangur liðins árs. Allir félagsmenn hafa atkvæðisrétt á aðalfundi.

6. gr.

Aðalfund skal halda eigi síðar en 30. september ár hvert og skal boða til hans með sannanlegum hætti með minnst tveggja vikna fyrirvara, skv. netfangaskrá félagsins og á heimasíðu félagsins. Aðalfundur er löglegur, sé rétt til hans boðað. Einfaldur meirihluti mættra félagsmanna ræður úrslitum mála. Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:

  1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
  2. Skýrsla stjórnar lögð fram
  3. Reikningar lagðir fram til samþykktar
  4. Skriflegar tillögur félagsmanna um lagabreytingar skulu hafa borist stjórn eigi síðar en einni viku fyrir aðalfund og skulu þær fylgja endanlegri dagskrá. Þær þurfa samþykki meirihluta fundarmanna.
  5. Ákvörðun félagsgjalds næsta árs
  6. Kosning stjórnar. Framboð til stjórnarstarfa skulu hafa borist stjórn eigi síðar en einni viku fyrir aðalfund og skulu þau fylgja endanlegri dagskrá.
  7. Kosning skoðunarmanna reikninga
  8. Önnur mál

7. gr.

Stjórn félagsins skal skipuð 5 félagsmönnum, formanni og 4 meðstjórnendum,  kjörnum á aðalfundi til tveggja ára í senn.  Stjórnin skiptir með sér verkum.  Stjórn félagsins fer með málefni félagsins milli aðalfunda.  Formaður boðar til funda.  Firmaritun er í höndum meirihluta stjórnar.

8. gr.

Rekstrarafgangi/hagnaði af starfsemi félagsins skal varið til áframhaldandi starfsemi félagsins.

9. gr.

Ákvörðun um slit félagsins skal taka á aðalfundi með einföldum meirihluta atkvæða og renna eignir þess til Rithöfundasambands Íslands.

10. gr.

Verðmæt skjöl og sögulegar heimildir um félagið varðveitist í Kvennasögusafni Íslands.

Lög þessi voru samþykkt á aðalfundi Fjöruverðlaunanna – bókmenntaverðlauna kvenna á Íslandi þann 23. september 2015.

Þessi lög voru felld úr gildi á aðalfundi Fjöruverðlaunanna – bókmenntaverðlauna kvenna á Íslandi þann 29. september 2016. Lesið núgildandi lög félagsins hér.