Fjöruverðlaunin óska eftir tilnefningum í ár.
Hægt er að leggja fram bækur eftir konur og kvár.
Þátttökukostnaður er ókeypis, en þremur eintökum þarf að skila inn fyrir dómnefnd.
Hægt er að tilnefna bækur í þremur flokkum:
- fagurbókmenntir
- fræðirit og bækur almenns eðlis
- barna- og unglingabókmenntir
Dómnefndarbókum skal komið á skrifstofu Rithöfundasambands Íslands í allra síðasta lagi fimmtudaginn 29. október 2026, en gott er að fá bækur fyrr ef hægt er. Ef ekki er unnt að koma prentuðum bókum til skila fyrir þann tíma, er nauðsynlegt að senda rafrænt eintak á bokmenntaverdlaunkvenna@gmail.com fyrir þann dag, svo að bókin komi til greina. Þá þurfa útgefendur að koma þremur prentuðum eintökum af sömu bók á skrifstofu RSÍ fyrir fimmtudaginn 12. nóvember 2026.
Tilnefningar verða kynntar í desember 2026. Fjöruverðlaunin verða svo veitt í mars 2027.
Þremur eintökum af bókum skal skilað til:
Rithöfundasambands Íslands
Gunnarshúsi – Dyngjuvegi 8, 104 Reykjavík
Opið 10:00 – 14:00
Aðeins bækur/handrit sem hafa borist fyrir 29. október koma til greina.
