Aðalfundur félags um Fjöruverðlaunin – bókmenntaverðlaun kvenna og kvára verður haldinn föstudaginn 25. september kl. 17.00.
Á fundinum verður kosið um ritara og varamann. Kjörtímabil er til tveggja ára.
Vinsamlegast sendið framboð í tölvupósti til stjórnar Fjöruverðlaunanna (bokmenntaverdlaunkvenna@gmail.com) fyrir 18. september.
Þar sem fundurinn fer fram á Teams er nauðsynlegt að skrá netfang sitt í skráningargáttina til þess að taka þátt.
Dagskrá fundar
- Kosning fundarstjóra og fundarritara
- Skýrsla stjórnar lögð fram
- Reikningar lagðir fram til samþykktar
- Skriflegar tillögur félagsmanna um lagabreytingar skulu hafa borist stjórn eigi síðar en einni viku fyrir aðalfund (þ.e. 18. september) og skulu þær fylgja endanlegri dagskrá. Þær þurfa samþykki meirihluta fundarmanna.
- Ákvörðun félagsgjalds næsta árs.
- Kosning stjórnar. Framboð til stjórnarstarfa skulu hafa borist stjórn eigi síðar en einni viku fyrir aðalfund og skulu þau fylgja endanlegri dagskrá.
- Kosning skoðunarmanna reikninga
- Önnur mál
Félagsgjöld
Á næstu dögum mun félagsfólki berast krafa í heimabanka fyrir félagsgjöldum Fjöruverðlaunanna. Við hvetjum félagsfólk allt til að greiða árgjöldin og leggja þar með sitt af mörkum til að tryggja framgang Fjöruverðlaunanna!
