Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna auglýsa eftir tilnefningum í ár.
Þátttökukostnaður: Ókeypis en þremur eintökum þarf að skila inn fyrir dómnefnd
Þátttaka tilkynnist á bokmenntaverdlaunkvenna@gmail.com í síðasta lagi, 15.10.2018. Gott er ef bókum sé skilað á skrifstofu FÍBÚT fyrir þann dag.
Hægt er að tilnefna bækur í þremur flokkum: fagurbókmenntir, fræðirit & bækur almenns eðlis og barna- og unglingabókmenntir
Dómnefndarbókum skal komið á skrifstofu Félags íslenskra bókaútgefenda í allra síðasta lagi 1.11.2018
Þrjár bækur tilnefndar í hverjum flokki, tilnefningar verða kynntar 3.12.2018
Verðlaunin verða veitt í janúar 2019.
Hvaða bækur koma til greina?
Miðað er við að til að bækur teljist hæfar til að vera í Fjöruverðlaunapottinum séu þær:
- vera skrifaðar af konu/konum
- frumútgáfa sé á íslensku
- gefnar út af forlagi á Íslandi
- koma út í fyrsta sinn á því ári sem um ræðir (ekki endurútgáfur)
- innihaldi texta af einhverju tagi
- að kona/konur eigi a.m.k. 50% af textanum í bókinni, eða að kona/konur séu helmingur höfunda (ef margir)
Ef upp koma vafaatriði er það hverrar dómnefndar fyrir sig að vega og meta hvort umrædd bók skuli talin gjaldgeng eða ekki.